Sjálfstæðisflokkurinn í NV-kjördæmi

Herdís Þórðardóttir, Einar Kristinn, Sturla Böðvarsson og Brynhildur EinarsdóttirNý heimasíða Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi hefur verið opnuð á slóðinni www.nordvesturland.is. Þar ber margt forvitnilegt á góma - fréttir úr flokksstarfinu, greinar frá þingmönnum og ráðherrum og upplýsingar um stefnu flokksins og kjördæmið. Hægt er að nálgast helstu vefmiðla Norðvesturkjördæmis á einu bretti, heimasíður sveitarfélaga og upplýsingar um stjórnir sjálfstæðisfélaga í kjördæminu svo nokkuð sé nefnt.

Fyrir þá sem vilja rifja upp skemmtilega kosningabaráttu í máli og myndum má benda á að fundum og mannfögnuðum síðasta vors er vel til haga haldið í myndaalbúmi vefjarins. Áhugamenn um pólitík ættu ekki að láta síðuna fram hjá sér fara enda getur þar margt fleira athyglisvert að líta - sjón er sögu ríkari.

Þetta eru ánægjuleg tímamót í starfi okkar og mikilvægur vettvangur til að fylgja stefnumálunum eftir. Eins og sjá má á vefnum snýst hann þó ekki einungis um NV-kjördæmi og heldur hefur mun breiðari skírskotun.

Brynhildur Einarsdóttir framkvæmdastjóri kjördæmisráðsins hefur veg og vanda af framtakinu og fylgdum við þingmennirnir síðunni úr hlaði við hátíðlega athöfn á Hótel Hamri í Borgarnesi á hlaupársdag.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband