25.7.2010 | 14:49
Ekkert að marka múðrið í VG
Það er ósvífni af verstu sort þegar þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna láta eins og þeir hafi eitthvað haft við kaup Magma energy á HS orku að athuga. Að minnsta kosti í alvörunni. Hótanir einstaka þingmanna um að láta af stuðningi við ríkisstjórnina eru augljóslega hugsaðar til pólitísks heimabrúks og ætlað að róa almenna flokksmenn sem eru æfir yfir aðgerðarleysi forystumanna flokksins í þessu umdeilda máli. Þetta má lesa um hér og hér.
Upplýst var um daginn að þrjár atrennur hafi verið gerðar að því að innlendir aðilar, - ríki og lífeyrissjóðir meðal annars, - keyptu hinn umdeilda hlut í HS orku. Þeim leist ekki vel á og nú er nýtingarrétturinn í höndum dótturfélags kanadíska fyrirtækisins Magma, með höfuðstöðvar í sænskri skúffu; sem vel að merkja er talið í samræmi við lög.
Kjarni málsins er þessi. Forystumenn Vinstri grænna hefðu auðveldlega getað komið í veg fyrir þessi kaup hefðu þeir viljað. Í þeim hópi er til dæmis umhverfísráðherrann sem var með innantóm mannalæti út af þessu máli eina helgina. Svo ekki sé talað um Steingrím J. Sigfússon formann VG og fjármálaráðherra. En þau gerður ekkert í málinu, einsog á daginn er komið.
Samfylkingin vildi hins vegar að þessi kaup gengju eftir. Og allir vita að sá flokkur ræður í ríkisstjórninni. Þegar flokksmönnum VG ofbýður, hafa forystumenn flokksins þann háttinn á að múðra svolítið, til þess að róa mannskapinn. En síðan er farið að vilja Samfylkingarinnar, til þess að ríkisstjórnin fokkist ekki upp.
Þannig verður það auðvitað í þessu máli. Annað væri vitaskuld stílbrot á framgagnsmáta flokksins með langa nafnið - Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook