Þeir hefðu froðufellt

Hver á bankana?Veltu einu fyrir okkur. Hvað hefði gerst ef einhverjir aðrir stjórnmálaflokkar en VG og Samfylking stæðu fyrir því að afhenda hópi fólks, sem enginn veit hverjir eru, öll yfirráð í tveimur af þremur stærstu bönkum landsins.

Það er auðvelt að geta sér til um svarið. Við hefðum séð froðufellandi stjórnmálamenn úr þessum flokkum í ræðustólum Alþingis vegna slíkrar ósvífni.

Og ósvífni er það. Ríkisstjórnin hefur fyrir löngu afhent óskilgreindum hópi kröfuhafa öll völd í Íslandsbanka og Arion banka. Af þessu stærir stjórnin sig og færir gamalkunnug einkavæðingarrök fyrir ákvörðun sinni. Þetta er að mati fjármála og forsætisráðherrans ein stærsta rósin í hnappagati ríkisstjórnarinnar og mjög haldið á lofti við erlend greiningarfyrirtæki og vinina hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

En svo neita þau að upplýsa um eignarhaldið. Svara spurningum um það út úr kú. Það er ótrúlegt en satt. Eða á maður að trúa því að enginn ráðherra í ríkisstjórninni hafi hugmynd um hver á bankana, sem þeir afhentu. Var bönkunum bara hent eitthvað út í buskann.

Sé það svo að ráðherrarnir viti ekki um eignarhaldið, þá er augljóst að þeir hafa orðið berir að vanrækslu. Það er kunnuglegt hugtak þessa dagana.

Viti þeir það en neita að upplýsa, eru þeir ekki bara lengur berir að valdhroka og leyndarhyggju( það er jú hvort sem er daglegt brauð núorðið) heldur fer að verða tilefni til að skoða lögin um upplýsingaskyldu stjórnvalda í lagasafninu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband