Nú er öldin önnur

ÓRGÞað er athyglisvert hve vinstri menn skeyta skapi sínu á forsetanum þessa dagana. Úr röðum þingmanna Vinstri grænna mátti heyra afsagnarkröfu á hendur Ólafi Ragnari Grímssyni forseta. Formaður flokksins og fjármálaráðherra, sem er jarðfræðingur að mennt, flutti lítt dulbúna árás á forsetann í þinginu í gær. Þetta gerðist eftir að þjóðhöfðininn fór inn á fræðasvið ráðherrans og hóf að tala um jarðfræði.

Þessi gagnrýni á sér mjög einfalda skýringu. Ólafur Ragnar Grímsson synjaði Icesavelögunum staðfestingar og það verður ekki fyrirgefið svo glatt.

En þá rifjast upp að þegar það var gagnrýnt að Ólafur Ragnar væri að gjörbreyta eðli embættis síns til dæmis með utanríkispólitískum yfirlýsingum. Því var þá afar  illa tekið  í ranni vinstri manna. Þeir risu upp á afturlappirnar og vörðu gjörðir forsetans.

Ekki mátti heyra á það minnst að nokkrar breytingar væru gerðar á stjórnarskránni sem lutu að stöðu forsetaembættisins, sem þó er þörf á.  Í þeirri vörn var öllu til tjaldað og þessi þvergirðingsháttur torveldaði mjög alla vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar.

En nú er öldin önnur. Icesavesamningurinn er VG liðum sem heilög kýr í tilteknum trúarbrögðum. Við því fyrirbrigði má ekki stugga öðruvísi en að hafa verra af. Það fær Ólafur Ragnar Grímsson að reyna þessi dægrin.

 

 

 

 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband