Flokkur atvinnulífsins?

ViðskiptablaðiðÞingmaður Samfylkingarinnar kvað upp úr um það fyrir fáeinum mánuðum að nú væri orðin vík á milli Sjálfstæðisflokksins og atvinnulífsins. Samfylkingin væri hins vegar orðinn hinn eini raunverulegi flokkur atvinnulífsins, allt vegna þess hve sá flokkur væri hallur undir aðild að ESB.

Þetta var á þeim dögum þegar margir töldu helst til bjargar þjóðinni að ganga í Evrópusambandið og þær raddir ómuðu líka úr viðskiptalífinu.

En þetta voru auðvitað bara hinir villtustu draumar. Og eins og allir vita þá rætast ekki allir draumar. Samfylkingin átti ekki þá frekar en nú samleið með atvinnulífinu, né atvinnulegri uppbyggingu.

Viðskiptablaðið birti í dag niðurstöðu skoðanakaönnunar sem segir okkur að 85,9% stjórnenda 300 stærstu fyrirtækja landins styðji ekki ríkisstjórnina og meirihluti þeirra eða 54% væru á móti aðild að ESB.

Þetta þarf engan að undra. Ríkisstjórnin hefur hreinlega reynst fjandsamleg atvinnulífinu.Stuðningur forsvarsmanna í fyrirtækjarekstri við ríkisstjórnina væri því eins og rembingskoss á vöndinn. Skattahækkanir, laga og reglugerðarflækjur, tómlæti gagnvart uppbyggingaráformum, fjandsamleg sjávarútvegsstefna og fjandskapur við orkufrekan iðnað. Þetta er stefna ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum í hnotskurn.

Afstaða stjórnenda í atvinnulífinu er því í rökréttu samhengi við tilefnið sem ríkisstjórnin hefur gefið. Yfirlýsing samfylkingarþingmannsins er því í ljósi skoðanakönnunar Viðskiptablaðsins, alveg eins og einn risastór aulabrandari.

 

 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband