Vinstri grænir fjarverandi byggðaumræðuna

...Sú var tíðin að þingmenn Vinstri grænna létu sig ekki vanta þegar byggðamál voru rædd á Alþingi. Hér áður og fyrr hefði það verið útilokað að þingmenn flokksins tækju ekki þátt í umræðunni þegar á dagskrá var ný Byggðaáætlun. En nú eru breyttir tímar. Iðnaðarráðherra, ráðherra byggðamála, lagði fram Byggðaáætlun og mælti fyrir henni á dögunum. Tveir þingmenn VG sátu yfir umræðunni, að hluta amk. Enginn þingmaður flokksins ómakaði sig hins vegar upp í ræðustól Alþingis til þess að fjalla um málið.

Hvað veldur? Eru þingmenn flokksins áhugalausir um þennan málaflokk? Kæra þeir sig kollóttann þegar þessi mál eru á dagskrá? Er forgangsröðunin þannig að þeim finnist önnur mál brýnni?

Er skýringin kannski sú að þeir sjá það sem blasir við öllum; Byggðaáætlunin er hvorki fugl né fiskur. Hún er ekkert innlegg í byggðamálin. Þetta þingplagg er hins vegar á ábyrgð Vinstri grænna rétt eins og Samfylkingarinnar. Þetta er stjórnartillaga, borin fram á ábyrgð þingflokka Vinstri grænna rétt eins og Samfylkingarinnar.

Fjarvera þingmanna flokksins frá umræðunum bendir því til þess að þeir hafa ekki viljað axla ábyrgð á þessari snautlegu áætlun. Það er hin líklega skýring á fjarveru þeirra. Og hún er vel skiljanleg.

Inni í áætluninni er margs konar samtíningur, sem í mörgum tilvikum á ekkert skylt við byggðamál í sjálfu sér. Greinilegt er að í byggðamálum telur ríkisstjórnin ekki að sjávarútvegur eða landbúnaður gegni nokkru hlutverki. Sjávarútvegs er getið einu sinni og þar er um lítilfjörlegt atriði að ræða. Hvergi er stafkrók að finna um landbúnað. Þetta getur ekki verið að skapi Vinstri grænna. Þeir hafa því séð sitt óvænna og haldið sig fjarri þessum ósköpum.

 

 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband