Hvað koma slík smámál okkur við?

AlþingiÁherslurnar í þjóðmálaumræðunni eru sérstakar um þessar mundir. Í síðustu viku fóru fram á Alþingi umræður um tvö stórmál sem að jafnaði hefðu hlotið einhverja athygli. En ekki núna. Hvorug þessara mála vöktu nægjanlega athygli svo að þau rötuðu inn í fréttatíma. Fjölmiðlar móta þjóðmálaumræðuna og sjónarhorn þeirra ræður hvað kemst á dagskrá hennar á hverjum tíma.

Iðnaðarráðherra fylgdi úr hlaði liðónýtri byggðaáætlun til fjögurra ára, sem hér hefur verið gerð að umtalsefni. Byggðaáætlun segir okkur eitthvað um hver áhersluatriðin eigi að vera í byggðastefnu stjórnvalda til næstu fjögurra ára. Ríkisstjórnin skilar þar auðu. Saman eru tínd einhver sundurlaus atriði, sem hafa svo ekki endilega nokkra byggðalega skírskotun. Áætlun ríkisstjórnarinnar er vitaskuld nokkuð aðhlátursefni. Sérstaklega hin þaulhugsuðu áform um að láta viðarkyndingu leysa hitaveituáformin af hólmi.

Samgönguáætlunin segir okkur frá áformum og fyrirheitum stjórnvalda í vegamálum, flugvallauppbyggingu og hafnargerð í landin. Ekki vöktu þau mál ýkja mikla athygli fjölmiðla. Umræðan um þennan þýðingarmikla þátt sem miklu mun varða fyrir stór landsvæði varð engin úti í þjóðfélaginu, vegna þess að sjónarhorn fjölmiðla náði ekki að þessu máli.

Samgönguáætlun sem er lögð fram við núverandi aðstæður verðskuldar mikla umræðu; gagnrýna umræðu. Nú þarf nefnilega mjög að vanda sig og slíkt kallar á lýðræðislega umræðu.

Þess vegna ber mjög að harma að hvorugt þessara stórmála skuli hafa verið talið eiga erindi til almennings, að mati fjölmiðlanna okkar. Spurningin sem vaknar er einmitt þessi, hvort fjarvistir þessara stóru mála úr þjóðmálaumræðunni sé ekki skýr vitnisburður um þröngan hugarheima þeirra sem fjölmiðlunum stýra?




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband