Skýrara gat það ekki orðið

Jón BjarnasonEitt er alveg orðið ljóst. Samningaumleitanir Íslendinga vegna ESB aðildarviðræðna eru í háalofti. Yfirlýsing Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra í orðaskiptum við mig á Alþingi sl. miðvikudag sagði okkur það svart á hvítu.

Ég innti ráðherrann álits á því hvort þess mætti vænta að íslensk stjórnvöld myndu verja hagsmuni landbúnaðarins í samningaviðræðum við ESB. Spurt var að gefnu tilefni. Framkvæmdastjórn ESB hafði sett fram það álit sitt, að við þyrftum að leggja af íslenska landbúnaðarstefnu, hverfa frá tollvernd, setja upp milljarðabatterí í kring um landbúnaðarstjórnsýsluna og heimila innflutning á erlendu búfé, með aðild að ESB.

Það var því brýnt að heyra viðhorf ráðherra málaflokksins til þessara álitaefna.

Sem betur fer tók ráðherrann af skarið, þó það þyrfti tvær atrennur til að hann léti í ljós afstöðu sína. Nú liggur hún þó fyrir. Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra ætla bæði að viðhalda fyrirvörum meirihluta utanríkisnefndar Alþingis og fyrirvörum Bændasamtakanna. Afdráttarlausara getur það vart verið.

Þessu ber að fagna.

En þá eru viðræðurnar við ESB orðnar afar sérstakar svo ekki sé meira sagt. Fyrirvararnir taka til grundvallaratriða. Þar gildir annað hvort eða. Við verðum að falla frá þeim fyrirvörum viljum við gerast aðilar að ESB. Svo einfalt er það. Fagráðherrann ætlar ekki að gera það, svo að þess er vart að vænta að samningarnir leiði til nokkurrar niðurstöðu.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband