VG vill ekki rugga ríkisstjórnarfleyinu

Tyft til hlýðniÞað er sagt að VG sé á móti því að Magma energy kaupi hlut Geysis Green í HS orku og fái þannig aðgang að orkuvinnslurétti fyrirtækisins. Þannig tala líka þingmenn flokksins og jafnvel ráðherrar hans í ríkisstjórninni, sem er skrýtið vegna þess að þeir hafa haft nægjanlegan tíma til að hafast að; hefðu þeir kært sig um.

Líklegasta skýringin á athafnaleysi þeirra er sú að sætin við ríkisstjórnarborðin eru þeim svo kær og þeim verður ekki teflt í óvissu fyrir svo ómerkilegar ástæður sem hugsjónir, hugmyndafræði, eða prinsípp.

Ekki frekar en í öðrum málum.

1. mál. Var ekki VG á móti aðildarumsókn að ESB fyrir kosningar og álykta þeir ekki gegn ESB á flokksfundum?  Svo æmta þeir eitthvað í þingsölum og móast við, en málinu er aldrei teflt í neina tvísýnu. Ekki má styggja Samfylkinguna. Þess vegna greiddu flestir þingmenn VG með aðildarumsókn og flokkurinn ber á henni jafna ábyrgð með Samfylkingunni.

2. mál. Var ekki VG á móti Icesavesamningum? Sama þar. Fáeinir þingmenn flokksins mótmæla; með miklum látum að vísu. En því máli er heldur ekki teflt í tvísýnu. Nægjanlega margir VG þingmenn voru teymdir að atkvæðagreiðslutökkunum til að segja já, svo málinu og þar með ríkisstjórninni væri ekki ógnað. Formaður VG fer svo í fylkingarbrjósti og ber ábyrgð á tveimur afleitum Icesavesamningum.

3. mál.  Segja ekki flokkssamþykktir VG að ekki eigi að leggja niður sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytið? Samþykktu ekki allir þingmenn og ráðherrar þá stefnu?  Nú eru þeir að lyppast niður, til að þóknast Samfylkingunni. Rétt eins og fyrri daginn.

Nú er búið að selja hlut Geysis green í HS orku. Beint fyrir framan nefið á ríkisstjórninni. Hún hefur fylgst þar með hverju skrefi og örugglega haft nægjanlegan tíma til aðgerða. En slíkar aðgerðir hefðu ruggað ríkisstjórnarfleyinu. Og það mátti auðvitað ekki.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband