19.5.2010 | 14:30
Ríkisstjórnin sendir út neyðarkall
Nú er búið að fitja upp á nýjum spuna í vandræðum ríkisstjórnarinnar við fjárlagagerðina. Í stað þess að glíma við 100 milljarða ríkissjóðshalla, er púðrinu eytt í uppstokkun ráðuneyta. Það er í sjálfu sér mál sem ekki á að ýta út af borðinu. Það leysir þó ekki stóra vandann og er satt að segja líklegt til að kosta fé til skamms tíma, vegna biðlauna og annars kostnaðar.
Stjórnarliðar, einkum Samfylkingin, puðar í þessu máli, til þess að dreifa athyglinni frá hinum raunverulegu verkefnum. Þetta er eins konar pólitísk sefjunarárátta fólks sem vex viðfangsefni sitt í augum.
Ríkisstjórnin ræður ekki við uppstokkun atvinnuvegaráðuneytanna. Hún er klofin í málinu. Stjórnarflokkarnir sjálfir eru innbyrðis klofnir ofan í rót í málinu. Það kemst ekki vandræðalaust lönd né strönd. Og þá er sent út neyðarkall í þingsölum til Sjálfstæðisflokksins um að redda fúadalli ríkisstjórnarinnar til hafnar. Hvers konar della er þetta!
Hvernig dettur mönnum í hug að við munum standa að því að rífa sjávarútveginn og henda honum út úr sjávarútvegsráðuneytinu? Eða að við munum veikja stöðu landbúnaðarins til þess að greiða leið fyrir ESB inngöngu? En út á það ganga uppstokkunarhugmyndir ríkisstjórnarinnar.
Við erum tilbúin í uppstokkun í stjórnsýslunni, en ekki undir hinum vitlausu formerkjum, sem eru afraksturinn af valdabraski ríkisstjórnarflokka sem eru sjálfir út og suður í málinu.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook