Nú er röðin komin að Vinstri grænum

Vinstri grænirÞað er gróflega dapurlegt en það er satt. Fréttablaðið og stjórnmálafræðiprófessor á Akureyri virðast ekki geta lesið út úr skoðanakönnun blaðsins sem birtist nú í morgun um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórnarkosningunum. Stjórnmálafræðiprófessorinn Grétar Þór Eyþórsson les það út úr könnun blaðsins að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin tapi fylgi. Sem er út af fyrir sig rétt hjá honum. Fréttablaðið gerir þau orð hans að sínum

En það er kannski ekki fréttnæmast við þessar aðstæður. Þessa tilhneigingu höfum við séð í könnunum undanfarinna vikna.

Mestu tíðindin eru auðvitað að samkvæmt könnuninni er Besti flokkur Jóns Gnarr með hreinan meirihluta

Að öðru leyti hlýtur mesta athygli að vekja hrun Vinstri grænna. Sá flokkur hefur siglt nokkurn óskabyr að undanförnu í könnunum. Í þessari könnun hrynur fylgi hans hérumbil um helming. Sá flokkur er þar með einnig orðinn fórnarlamb sóknar Jóns Gnarr og félaga.

Annars er staðan svona samkvæmt könnuninni:  Auk þess sem að framan er greint um gríðarlegt fylgistap Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna er Framsóknrflokkurinn vart til í Reykjavík. Flokkurinn eigrar um í pilsnerstyrk, eins og forðum var sagt um Alþýðuflokk Jóns Baldvins.

En athyglisvert er það svo sérstaklega, að í öllu þessu ótrúlega umróti segjast hérumbil allir Reykvíkingar  bera mikið traust til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. 70% kveða upp úr um það. Í ljósi stjórnmálaástandsins sem nú er í Reykjavík, er þetta ótrúlegur, en algjörlega verðskuldaður árangur Hönnu Birnu. Hún hefur unnið hreint afrek að tefla saman sundurlausri borgarstjórn og taka upp ný og lofsverð vinnubrögð.

 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband