25.5.2010 | 09:27
Pólitíski vandinn er verri en efnahagsvandinn
Við glímum ekki bara við efnahagslegan vanda í þjóðfélagi okkar, heldur einnig pólitískan vanda. Af tvennu illu er hinn pólitíski háskalegri. Einfaldlega af því að pólitíski vandinn stendur í vegi þess að hægt sé að ráðast til alvöru atlögu gegn efnahagsvandanum. Forsenda þess að við ráðum við efnahagslegu úrlausnarefnin er þess vegna að pólitíski vandinn sé ekki að þvælast fyrir okkur.
Hinn pólitíski vandi birtist okkur fyrst og síðast í því að ríkisstjórnin sem ber ábyrgð á landsstjórninni ræður ekki við verkefnin sín. Hún logar í innbyrðis illdeilum. Að hluta til á milli stjórnarflokkanna, en ekki síður innan þeirra. Sérstaklega hjá VG. Það er henni þess vegna einfaldlega ofviða að takast á við sitt mikla verkefni.
Kjarni efnahagsstefnunnar hefur átt að vera samningur okkar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, sem fyrri ríkisstjórn kom á. Allir vita að þau mál hafa öll tafist og þar með framvinda efnahagsmálanna. Efnahagsbatinn sem við ættum vera farin að glitta í er enn ekki sjáanlegur á sjóndeildarhringnum. Allt er i skötulíki. Fullnægjandi úrræði fyrir heimilin líta ekki dagsins ljós og það sem hefur sést bíður von úr viti óafgreitt í þingnefndum.
Í atvinnulífinu þvælist ríkisstjórnin endalaust fyrir og er meira að segja búin að hafa það af að sprengja Stöðugleikasáttmálann, sem átti að vera stjórninni sem krúnudjásnið sjálft.
Það er þess vegna sorglegra en tárum taki að okkar helsta meinsemd nú um stundir er heimatilbúinn að öllu leyti. Pólitískur vandi, af því við erum með ríkisstjórn, sem allir vita nema hún sjálf, að er ekki til nokkurs hlutar brúkleg. Svo logar allt stafnanna á milli í illdeilum sem gera það að verkum að engum er treyst og samskipti manna í hreinu skötulíki.
Í samanburði við þessi ósköp fölnar jafnvel efnahagsváin og er hún þó ærin.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook