26.5.2010 | 23:25
Atvinnueyðingarstefna eða atvinnustefna ?
Hvern halda ráðherrar ríkisstjórnarinnar sig vera að blekkja með sífri sínu um að vel sé að verki staðið við atvinnuuppbygginguna í landinu? Þau mál eru þó öll með ósköpum og ríkisstjórnin gerir ekkert annað en að þvælast fyrir. Það mætti halda að ríkisstjórnin fylgi fremur atvinnueyðingarstefnu en atvinnustefnu.
Samt kemur iðnaðarráðherra úr Samfylkingunni alltaf fram í fjölmiðlum eftir hvert einasta gönuhlaup Vinstri grænna og segir að mikil samstaða ríki um atvinnumálin í ríkisstjórninni. Nú síðast í sambandi við uppbyggingu atvinnutækifæra austur á Húsavík.
En samstaða um hvað?
Er það samstaðan um að draga lappirnar í hvert sinn sem einhver reynir að leggja fram hugmynd þar sem ríkið getur ráðið úrslitum? Samfylkingarmenn sem maður hittir á förnum vegi kenna Vinstri grænum, samstarfsflokki sínum í ríkisstjórninni, um það sem miður fer.
Þessi mál eru hins vegar á sameiginlega ábyrgð ríkisstjórnarinnar allrar. Sé það vilji Samfylkingarinnar að atvinnuverkefnin komist á koppinn eiga þeir að tryggja að svo verði. Það dugir ekki að láta afturhaldssemi VG yfir sig ganga. Standi hugur þeirra til atvinnuuppbyggingar þá eiga þeir að sýna það í verki. Ítrekaðar yfirlýsingar iðnaðarráðherrans, sem lofar og prísar samstöðu ríkisstjórnarflokkanna í atvinnustefnumálum, benda því miður til að það sé ekki bara á ábyrgð VG að svo illa gangi. Þar er við báða flokkana að sakast.
Þó allt logi stafnana á milli í ríkisstjórnarflokkunum, kemst hnífurinn ekki á milli þeirra þegar kemur að því að þvælast fyrir uppbyggingu atvinnulífsins.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook