31.5.2010 | 09:34
Úrslitin eru alls ekki einhlít
Úrslitin í sveitarstjórnar-kosningunum á laugardaginn voru alls ekki einhlít. Það sem mesta athygli hefur vakið á landsvísu eru úrslitin í stóru sveitarfélögunum. Þar sem annars vegar var um að ræða ævintýralegan árangur framboða utan hefðbundinna stjórnmálaflokka. Listi Odds Helga Halldórssonar á Akureyri og Jóns Gnarr í Reykjavík eru bestu dæmin um það.
Hins vegar sú staðreynd að í ýmsum stærri sveitarfélögunum var kosningaþátttaka arfaslök á okkar mælikvarða og margir skiluðu auðu. Helmingi fleiri skiluðu til dæmis auðu í Reykjavík en kusu Framsóknarflokkinn. Jafn margir seðlar voru auðir í Hafnarfirði, og atkvæði greidd Vinstri grænum. Sá flokkur mun þó ráða því hvaða stjórnarmynstur verður í bænum. Þetta segir sína sögu.
Athyglisvert er hins vegar að úti á landi er víðast aðra sögu að segja. Þar er kosningaþátttaka svipuð og áður og auðu og ógildu atkvæðin svipuð og fyrr. Þetta er athyglisverður munur. Og kennir okkur meðal annars að þar er staðan allt önnur en á höfuðborgarsvæðinu. Hinn lífsnauðsynlegi trúnaður sem þarf að ríkja á milli stjórnmálamanna og kjósenda er greinilega almennt til staðar í sveitarfélögunum á landsbyggðinni þó á hann skorti sums staðar annars staðar.
Besti flokkurinn er sigurvegarinn í Reykjavík. Því hefði enginn trúað fáeinum vikum fyrir kosningar. Þetta segir okkur hins vegar allt um þann jarðveg sem er í höfuðborginni. Það fræðir okkur líka um að kjósendur telja ekki til staðar það eðlilega og nauðsynlega samband við stjórnmálamennina, sem á að vera fyrir hendi. En það er forsenda þess trausts sem við eigum umfram allt að varðveita. Það er sýnilega ekki fyrir hendi núna alltof víða, eins og við svo sem vissum.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook