8.6.2010 | 08:18
VG styður hlutafélagavæðingu vegakerfisins
Þingmenn Vinstri grænna verða stöðugt kokvíðari, eftir því sem líður á stjórnarsamstarfið með Samfylkingunni. Nú bættist enn eitt stjórnarmál við í gær, sem að óbreyttu hefði átt að kalla fram gríðarlega andspyrnu Vinstri grænna. Hlutafélagavæðing vegakerfisins. En ráðherrar og þingmenn Vinstri grænna styðja það mál. Kristján L. Möller samgönguráðherra upplýsti það í gærkvöldi þegar ég spurði hann að þessu er hann mælti fyrir málinu.
Þingmálið er í sjálfu sér ágætt, finnst okkur hægri mönnunum. Það felur í sér heimild til samgönguráðherra til að stofna hlutafélag sem hefur það að markmiði að standa að lagningu tiltekinna vega ásamt nauðsynlegum undirbúningi. Heimildir félagsins til að standa fyrir vegagerð eru mjög víðtækar. Í 5. grein frumvarpsins segir: "Ráðherra er heimilt að gera samninga við félagið um uppbyggingu, rekstur og viðhald vega í samræmi við markmið stjórnvalda og stefnumótun í samgöngumálum á hverjum tíma."
Þetta er sem sagt stefna VG varðandi uppbyggingu innviða samfélagsins. Það er komið á könnu hlutafélags. - Já, öðruvísi mér áður brá.
Ég sé fyrir mér reiðilestursræður Ögmundar Jónassonar og Steingríms J. Sigfússonar hér fyrr meir sem þeir hefðu flutt af sams konar tilefni. En ekki lengur. Nú standa þeir að málinu og styðja það skilmálalaust. Þó ekki með ræðuflutningi í gærkvöldi. Þar komu þeir hvergi við sögu. Minntu bara á sig með fjarverunni.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook