Pólitískar hýðingar við Austurvöll

HýðingAusturvöllur var fyrrum hirtingarpláss eins og það var kallað. Þar voru menn hýddir. Það lagðist af fyrir rúmum 180 árum; síðasta hýðingin fór fram 1829.

En í þinghúsinu við Austurvöll fór fram annars konar hirting í gærkveldi. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lagði fram frumvarp sitt um breytingar á Stjórnarráðinu. Þetta gerir hún þrátt fyrir að flokkssamþykktir Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs kveði á um annað. Með þessu hefur hún að engu vilja vilja amk. eins ráðherra í ríkisstjórninni, Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra.

Í ríkisstjórnum sem menn tækju alvarlega, væri svona framferði vitaskuld undanfari þess að viðkomandi ráðherra yfirgæfi ríkisstjórnina. En það verður ekki í þessu tilviki. Enda tekur enginn núverandi ríkisstjórn alvarlega. Ekki frekar en þegar ESB tillaga ríkisstjórnarinnar og stjórnvarflokkanna var samþykkt í blóra við vilja sama ráðherra.

Eitt má Jóhanna Sigurðardóttir eiga. Hún kann að hirta ráðherrana sína og niðurlægja þegar svo ber undir. Þetta er ekki í fyrsta sinn. Frumvarpið er búið að velkjast lengi í stjórnarflokkunum. Nú kemur það allt í einu fram. Það gerist þremur sólarhringum eftir að sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra flutti sjómannadagsræðuna sína og sagði:

„Þau áform að leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið við núverandi aðstæður eru ekki hyggileg og reyndar fráleit. Tek ég þar með eindregið undir áskoranir og varnaðarorð hagsmunasamtaka í sjávarútvegi og landbúnaði.“

Til þess að undirstrika að ekkert mark sé á Jóni Bjarnasyni tekið í Samfylkingunni og ríkisstjórninni, leggur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar fram frumvarp sitt. Hirtingin er algjör á samstarfsflokknum. Þetta er pólitísk hýðing; og það ofan á allt annað sem á undan er gengið.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband