11.6.2010 | 08:54
Stjórnarráðsfrumvarpið nýtur ekki stuðnings á Alþingi
Frumvarp forsætisráðherra um Stjórnarráðið, sem fjallað var um hér í gær, tekur á sig æ skrautlegri myndir. Nú liggur það fyrir að ekki er þinglegur meirihluti fyrir málinu. Upplýst hefur verið að þrír þingmenn Vinstri grænna hafi lýst sig andsnúna málinu, ekki er ólíklegt að það eigi einnig við um þann þingmann líka sem var fjarverandi afgreiðslu málsins og einn þingmaður sat hjá. Þá er það orðið ljóst. Fjórir til fimm þingmenn flokksins styðja ekki málið. Ef aðrir þingmenn stjórnarliðsins eru málinu fylgjandi nýtur það stuðnings 29 þingmanna sem vitað er á Alþingi. Það verður með öðrum orðum ekki samþykkt.
Í ríkisstjórninni nýtur málið heldur ekki órofa stuðnings. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ætlar að greiða atkvæði gegn stjórnarfrumvarpi; máli sem ríkisstjórnin stendur að eðli máls samkvæmt. Samt er það flutt sem stjórnarfrumvarp. Þetta er orðin ótrúleg vitleysa. Ekki þó dæmalaus. Þessi ríkissstjórn hefur áður hegðað sér svona; í sjálfu ESB málinu, þegar nákvæmlega sama staða var uppi.
Það er hreint uppnefni að kalla mál stjórnarfrumvarp sem ekki nýtur stuðnings allrar ríkisstjórnarinnar. Og það alveg sérstaklega þegar um er að ræða stórmál eins og uppstokkun á Stjórnarráðinu er. Til viðbótar er það hreinn sýndarleikur að fara af stað með mál eins og þetta, sem ekki nýtur stuðnings þeirra sem í ríkisstjórninni sitja eða bera ábyrgð á henni ábyrgð.
Málið er komið í ógöngur. Það verður ekki samþykkt á Alþingi. Það vita forsvarsmenn málsins. Þá er farið að reyna að væla út stuðning við málið úr öðrum áttum og tala um samstarf og sættir. Heyr á endemi!
Hér tala þeir um sættir sem leggja fram mál í fullkominni ósátt við þá sem málið varða mest, eins og á við varðandi það að leggja niður sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytið. Svo er biðlað til stjórnarandstöðunnar um að fara í einhvers konar pólitíska rústabjörgu. Og það á máli sem ríkisstjórnin og hennar nótar eru búnir að klúðra svo gjörsamlega og vinna algjörlega án nokkurs samráðs við einn né neinn; allra síst stjórnarandstöðuna.
Nú hljótum við að segja bara eins og krakkarnir: Áttu annan !
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook