Leyfi til að kíkja á gluggann

Gægst inn um gluggannFrumvarpið um Stjórnarráðið er dæmi um hve ríkisstjórninni eru mislagðar hendur. Það er sjálfsagt mál að við endurskoðum lög um Stjórnarráðið, með það fyrir augum að auka skilvirkni, pólitíska ábyrgð og til þess að draga úr kostnaði. Það frumvarp sem nú hefur verið lagt á borð okkar þingmanna gerir það ekki. Það er bara enn einn afraksturinn sem við sjáum af hrossakaupum ríkisstjórnarinnar. Fingraförin af öllu því mixi eru löðrandi út í gegn um frumvarpið.

Um leið og talað er um að sameina ráðuneyti sjávarútvegs og landbúnaðar og iðnaðarráðuneyti, er tekin um það ákvörðun að kippa einni burðarstoð sjávarútvegsins út úr þessu ráðuneyti. Stjórn auðlindanýtingarinnar á að færa inn í Umhverfisráðuneytið, með afleiðingum sem allir sjá hverjar verða.

En það er eins og það votti fyrir einhverju samviskubiti. Um leið á að setja á laggirnar samstarfsvettvang til þess að opna fyrir aðkomumöguleika sjávarútvegshluta stjórnsýslunnar, að ákvörðunum sem eru grundvallandi fyrir nýtingu sjávarútvegsauðlindarinnar. Með öðrum orðum. Þeir sem um sjávarútveginn véla í þjóðfélaginu fá að kíkja á gluggann hjá Umhverfisráðuneytinu til þess að fylgjast með. – Og ég er ekki að grínast.

Nú þegar í ljós er komið að ríkisstjórnin hefur ekki þingmeirihluta fyrir þessu máli sínu, er kallað eftir samstarfi; samstarfi á forsendum ríkisstjórnarinnar, til þess eina ferðina enn að efna til björgunarleiðangurs fyrir ríkisstjórnina, ekki málefnalegu samstarfi þar sem sem flestir eru kallaðir til í upphafi máls.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband