Alltaf leggst okkur eitthvað til

hvalirAlltaf leggst okkur andstæðingum ESB aðildar eitthvað til. Nú síðast hótun þýskra stjórnvalda í okkar garð. Fulltrúi þeirra gekk á fund sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra með purkunarlaust hótunarbréf. Hótunin hljómaði svona í stuttri endursögn. Ef þið hættið ekki hvalveiðum, þá fáið þið ekki að ganga í Evrópusambandið !

Halda nú þessir herramenn og frúr, að svona nokkuð virki? Vita þýsk stjórnvöld ekki að það er hérumbil enginn áhugi á aðildarumsókninni á meðal þjóðarinnar? Og hafa þeir ekki séð að enginn er lengur brennandi í andanum gagnvart þessu ESB máli nema fáeinir félagar í Samfylkingunni.

Svona hótanir hljóma því sem hin fegursta tónlist í eyrum okkar Íslendinga. Þetta eru einfaldlega enn frekari rök gegn ESB aðild.

Ekki það að þetta komi nokkuð á óvart. Það hefur lengi legið fyrir að við yrðum að láta af sjávarúvegsstefnu okkar, gengjum við í ESB. Þar á meðal því sjálfsagða máli að nýta hvalastofnana með sjálfbærum og ábyrgum hætti. Við þekkjum hótanir meintra vina okkar gagnvart hvalveiðum okkar. Þeir láta fordóma ráða för sinni.

Spurningin er þá þessi. Ætla íslensk stjórnvöld að láta fordómafulla afstöðu erlendra ríkja og samtaka ráða innanríkismálum okkar? Ætla íslenskir hvalveiðiandstæðingar að slást í för með þeim og halda áfram að móast við gegn hvalveiðum, sem njóta almenns stuðnings Íslendinga.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband