Hvað með fólkið með verðtrygginguna?

VerðtryggtDómum Hæstaréttar um bílalánin sem voru gengisbundin, hefur verið fagnað víðast hvar. Það er að vonum. Tugir þúsunda Íslendinga eru með slík lán og niðurstaða dómsins þýðir að þau muni lækka, greiðslubyrðin minnka og hagur fólks með slík lán batna. Spurningin er eingöngu hversu mikið. Um það eru menn ekki á eitt sáttir. En lækkun er það örugglega; lækkun sem um munar.

En er þá ekki allt í himna lagi? Hefur réttlætinu ekki verið fullnægt? Betri kjör, meiri ráðstöfunartekjur tugþúsundanna. Hljómar það ekki nógu vel?

Jú. Sannarlega hljómar það býsna vel. En mál eru sjaldnast svo einföld í mannheimum. Þegar menn bregða réttlætisljósinu á svona mál þá vandast þau.

Hið augljósasta verður auðvitað samanburðurinn við verðtryggðu lánin. Ýmsir – og það sennilega þeir gætnustu – tóku verðtryggð lán. Hvers eiga þeir að gjalda? Staða þeirra verður sýnilega miklu lakari en þeirra sem tóku gengisbundnu lánin. Þetta á klárlega við um bílalánin og væntanlega líka um önnur lán sem voru bundin sams konar skilmálum. Það gæti til dæmis átt við um íbúðalán; sum að minnsta kosti.

Og þegar þar kemur sögu þá verður réttlætisljósið ennþá skýrara.

Þess vegna er eitt alveg ljóst. Dómurinn núna greiðir úr vandræðum margra. En hann mun magna upp gríðarlega reiði, ef sá hluti almennings sem er að sligast undan verðtryggingunni, fær ekki ámóta leiðréttingu. Þá fyrst munum við sjá reiði almennings brjótast út. Það sem við höfum séð af slíku hingað til, verður hreinn barnaleikur í samanburðinum.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband