Skjaldborgin er hjá dómstólunum

Skjaldborg!Afskiptaleysi ríkisstjórnarinnar í kjölfar hæstaréttardómsins um gengisbundnu lánin kom á óvart. Það hafði nefnilega verið látið í veðri vaka að ríkisstjórnin væri vel undir búin, hver sem niðurstaða Hæstaréttar yrði. Það átti að sögn að vera til staðar plan b, c, d, e og eiginlega allt stafrófið.

Svo féll dómurinn. Ráðherrarnir þögðu í hálfan sólarhring en komu svo og sögðust ekkert ætla að hafast að.

Þessi viðbrögð eru alveg sjónarmið sem hægt er að hafa á skilning, þó þau séu á skjön við það sem fyrr var sagt. Þetta er það sem menn kalla í stjórnmálaum afskiptaleysisstefnu, eða Laizze faire;  oft líka kölluð nýfrjálshyggja nú til dags. Það verður þá ekki á þá stefnu logið. Hún lifir ennþá góðu lífi; hjá ríkisstjórninni okkar -  amk stundum.

Þá er að velta fyrir sér líklegri niðurstöðu þessarar stefnu ríkisstjórnarinnar. Hún verður augljóslega svona: Fjármálafyrirtækin kveða upp úr hvaða vaxtastig þau muni nota. Um það verður ábyggilega ágreiningur. Það má sjá af umræðunni að blasir við.  Sá ágreiningur fer fyrir dómstólana, héraðsdómstóla  og Hæstarétt. Óvissan ríkir áfram.

Það er skoðun stjórnvalda að úr þessu álitaefni verði bara skorið fyrir dómstólum. Það má til dæmis lesa út úr skrifum félagsmálaráðherra í dag.

Stefnan er mörkuð. Hin eftirlýsta og marghædda Skjaldborg um heimilin er fundin. Menn geta haft upp á henni hjá dómstólunum!

 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband