17.8.2010 | 09:58
Laskað fley
Fley ríkisstjórnarinnar er mikið laskað þegar Alþingi kemur saman nú til funda í byrjun september. Það er ekki nóg með að stjórnin sé með allt niður um sig í smærri og stærri málum. Uppákomur sumarsins hafa stórskaðað svo stjórnina, að trúverðugleiki hennar er enginn.
Þetta sér auðvitað hvert mannsbarn og varla verður öðru trúað lengur en að ráðherrar og þingmenn hennar geri sér grein fyrir þessari stöðu. Kokhreysti þeirra og tilburðir til annars, verða bara að skoðast sem innantóm mannalæti.
Þær eru að verða svo margar uppákomurnar í stjórnarsamstarfinu að ein kaffærir alltaf aðra, þegar þær dúkka upp. Fyrir utan stóru pólitísku ágreiningsefnin eru það hin málin sem lúta að spurningum um heiðarleika og trúverðugleika, sem eru að leika ríkisstjórnina svo grátt upp á hvern dag.
Þau tvö hin nýjustu, klúðrið í kring um umboðsmann skuldara og hið dæmalausa mál viðskiptaráðherrans gera það að verkum að allt tal um nýja starfshætti, gagnsæi, heiðarleika og fagmennsku, hljómar sem fimmaurabrandari þegar stjórnarliðar taka þessi hugtök sér í munn.
Þessum málum hefur hins vegar verið teflt þannig að þau eru ekki einkamál þessara ráðherra. Þau verða færð skuldamegin í bækur ríkisstjórnarinnar allrar. Þingmenn stjórnarliðsins hafa í raun axlað á þeim pólitíska ábyrgð og keppst við að taka þessi klúðursmáls ráðherranna í fangið. Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og þingflokkar flokka þeirra eru orðnir ábyrgðarmenn málsins og það er að þeim sem verður gengið þegar hin pólitísku skuldaskil eiga sér stað.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook