Víst er ESB umsókn stefna ríkisstjórnarinnar

ESBSteingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður VG var óvenju skrautlegur þegar hann sagði á blaðamannafundi að aðildarumsóknin að ESB væri ekki á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar. Svona hjal er ekki einu sinni orðhengilsháttur. Þetta er bara hreint rugl.

Steingrímur sagði á blaðamannafundinum: "Það er ekki þannig að það sé stefna þessarar ríkisstjórnar að sækja um aðild að Evrópusambandinu og þaðan af síður að ganga í Evrópusambandið. Það er ekki svo.“

Formaður VG ætti að lesa stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem hann situr í. Þar stendur það svart á hvítu. Eðli málsins samkvæmt var það hlutverk utanríkisráðherrans að leggja málið fram. En þetta var stjórnartillaga, sem naut að vísu ekki stuðnings eins ráðherrans, Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra

En aðrir ráðherrar, þmt Steingrímur studdu tillöguna. Greiddu henni atkvæði sitt og nú hamast talsmenn flokksins við að verja viðræður sem eru ekki lengur aðildar, heldur aðlögunarviðræður.

Það vita auðvitað allir að þessi niðurstaða vegna ESB var aðgöngumiði VG að ríkisstjórninni. Samfylkingin stillti Vinstri grænum upp við vegg, þó þeir hefðu í raun enga stöðu til þess að loknum kosningum. VG laut hins vegar í gras og tryggði aðildarumsókninni brautargengi. Flokkurinn ber því fulla ábyrgð á málinu, eins og það er statt.

Þess vegna logar nú allt stafnana á milli í flokknum. Það er ráðist með offorsi á Jón Bjarnason, eins og á hefur verið bent. Í hópi VG er talað um að ráðherrann sé beittur einelti og ljóst að þar er spjótunum beint að félögunum í samstarfsflokknum, Samfylkingunni.

En á meðan flokkurinn kallar ekki til baka stuðning sinn við aðildarumsóknina ber hann fulla ábyrgð á þessari stefnumörkun ríkisstjórnarinnar um að sækja um ESB aðild. Undan þeirri ábyrgð geta menn menn ekki vikið sér með útúrsnúningum og blekkingarþrugli.

 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband