Alþingi sætir árásum

 

 

Alþingi hefur tvisvar sinnum orðið fyrir alvarlegum árásum á jafn mörgum árum. Hin fyrri átti sér stað þann 8. desember árið 2008, þegar hópur fólks reyndi að brjóta sér leið inn í þingið. Það hófst með látum á þingpöllum, sem þingverðir náðu fljótlega tökum á. En sjálfur varð ég rækilega var við þau miklu átök sem urðu í stigaganginum upp að þingpöllunum strax í kjölfarið. Veikburða hurð sem skilur að stigaganginn og ganginn fyrir framan þingsalinn, gekk sem í bylgjum og augljóst að þar tókst þingvörðunum og lögreglu að afstýra því að öskrandi hópur fólks ryddi sér leið inn í þingið.

Þetta fólk var greinilega ekki komið í friðsamlegum tilgangi. Ætlunin var bersýnilega að brjóta sér leið með illu inn í þingið. Herópin voru líka á þann veg, að það leyndi sér ekki að á þeim bæ var litið á það sem réttlætanlegt athæfi að koma þinginu frá með ofbeldi.

Þetta var grafalvarlegt mál og í mínum huga var það augljóst að það var lögreglan sem afstýrði  því  að inn í þinghúsið yrði ráðist.

Nú fara fram réttarhöld í þessu máli, þar sem ég bar meðal annars vitni. Sjá hér: http://vefblod.visir.is/index.php?s=4739&p=106655

Hitt málið kom upp á yfirborðið í gær, ætlaðar tölvunjósnir sem menn verða að taka mjög alvarlega. Ekki verður annað séð en að fagmannlega hafi verið að verki staðið. Menn sem sjá til þess að út þurrkist IP tölur og afmáð séu fingraför á vélbúnaðinum, eru greinilega að fela eitthvað.

Þetta er því augljóslega amk. tilraun til árásar á þingið. Ekki með líkamlegu ofbeldi, heldur af því tagi sem einkennir tölvuvædda veröld okkar. Það er makalaust að menn reyni að tala niður alvöru þessa máls, eins og bersýnilega hefur borið á. Þetta er grafalvarlegur atburður, sem mikilvægt er að varpa ljósi á.

S vavar Gestsson fyrrverandi þingmaður, ráðherra  og formaður Alþýðbandalagsins  skrifaði merkilega grein í Fréttablaðið 7. október sl. um það ofbeldi sem þingið hefur sætt. Það er ástæða til þess að rifja þessa grein upp. Hér má lesa hana. http://svavar.is/greinar/nr/107800/

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband