Fastir við sinn keip

 

Nú liggur það fyrir. Ekki er þess að vænta að ríkisstjórnin muni leiðrétta fjárlagatillögurnar gagnvart heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni, né raunar annars staðar. Ótilneydd  að minnsta kosti. Svörin eru orðin skýr og það sem lagt hefur verið fram í fjárlagafrumvarpi gagnvart heilbrigðisstofnunum á að standa þannig í fjárlögunum; fái stjórnarliðar um það ráðið. Þeir hafa meirihluta þingmanna að baki sér.Og því ráða þeir, nema þeir verði knúnir til annarrar niðurstöðu.

Nú þarf því að bretta upp ermarnar og halda áfram baráttunni.

Ég tók þessi mál upp á Alþingi núna áðan. Vísaði ég þar til samþykkta landsfundar VG sem var haldinn um helgina, sem ályktaði „gegn frekari niðurskurði í heilbrigðiskerfinu“, eins og segir orðrétt. Heilbrigðiskerfið er sagt vera komið að þolmörkum,  að frekari niðurskurður skerði þjónustu við sjúklinga alvarlega og valdi heilsuspillandi álagi á heilbrigðisstarfsfólk.

En hvernig ber að túlka þetta? Þá spurningu bar ég upp við Björn Val Gíslason formann þingflokks VG og varaformann fjárlaganefndar Alþingis. Ég túlkaði það sem svo að orðlagið „frekari niðurskurður“, vísaði til núverandi ástands. Sem sagt að flokkurinn væri andvígur því að ganga lengra en er í gildandi fjárlögum og væri því beint gegn niðurskurðaráformunum í  fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.

Þó ekki sé ég neinn löggiltur túlkandi samþykkta VG skildi ég þetta þannig.

Ég er svo sem ekki einn um þá túlkun. Hún er samhljóða áliti Bjarna Jónssonar, formanns Byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar og formanns Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem leggur út frá samþykktinni með sama hætti og ég í Feykir.is  í dag. Taldi ég að Bjarni mætti glöggt vita, þar sem hann hefði verið einn af þeim sem tillöguna flutti á landsfundi VG.

Þingflokksformaður VG er þessu ósammála. Hann telur að hér sé verið að vísa til þess að láta eigi staðar numið eftir að niðurskurðaráformin í fjárlagafrumvarpinu hafa verið samþykkt. Með batnandi hag eigi hins vegar að bæta í. En ekki núna. Alls ekki núna.

Þar með er lína ríkisstjórnarflokkanna lögð. Burtséð frá mótmælum einstakra flokksmanna og túlkun þeirra. Þetta er þá komið á hreint. Niðurskurðaráformin fyrir næsta ár eiga að standa. Þá vitum við það.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband