24.11.2011 | 20:59
Þeir vilja þessi fyrirtæki úr landi
Þegar hann Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kom fram í sjónvarpinu og sakaði fyrirtækið ELKEM um að vera mengandi starfsemi sem ekki greiddi skatta né skyldur, þá lýsti hann hug sínum til fyrirtækisins, vinnustað 300 manna. Þar með lýsti hann því yfir að ELKEM, áður Íslenska járblendifélagið, væri ekki velkomið hér á landi. Þessi starfsemi hefur verið hér við lýði frá árinu 1979, greitt góð laun, verið gríðarlega þýðingarmikill vinnustaður og haft í för með sér amk 1000 afleidd störf. Nú liggur það fyrir að hún er ekki lengur vel komin hér. Þá vitum við það. Kolefnaskattinum nýja sem ríkisstjórnin vill leggja á er beinlínis ætlað að hrekja fyrirtæki af þessu tagi úr landi. Orð fjármálaráðherrans fara ekki á milli mála.
Við skulum hafa það á hreinu að nýji kolefnisskatturinn sem er að hrekja úr landi heilu atvinnugreinarnar er liður í úthugsaðri skattatefnu ríkisstjórnarinnar. Hann er þess vegna ekkert ófyrirsjáanlegt slys. Þetta er bara birtingarmynd skattaæðisins sem ríkisstjórnin hefur verið haldin frá fyrsta degi.
Afleiðingarnar eru að koma í ljós. Nú hefur það þegar gerst af þessum sökum, að hugmyndir ELKEM um stækkun Grundartangaverskmiðjunnar eru ekki lengur til staðar. Fyrirætlanir um frekari starfsemi í tengslum við framleiðslu fyrirtækisins eru gengnar okkur úr greipum. Starfsemi sem flutt hafði verið hingað til lands frá verksmiðjum ELKEM í Noregi og sköpuðu hér störf og verðmæti, er á leið til Noregs á nýju.
Ríkisstjórninni eru sem sagt að takast prýðilega upp. Skattaæðið og vonlaus rekstrarskilyrði, pólitísk óvissa og fjandsemi í garð stóriðjustarfsemi hefur hjálparlaust gert þetta að verkum. Það ríkir hrein atvinnueyðingarstefna af hálfu ríkisstjórnarinnar þegar kemur að þessari atvinnugrein.
Og síðan til viðbótar er ríkisstjórnin að drepa í fæðingu nýja atvinnustarfsemi á sviði kísiliðnaðar, sem hefði velt 40 til 50 milljörðum á ári og skapað hundruð nýrra beinna starfa auk hinna afleiddu.
Það er ekki skrýtið að margir spyrji hvort þessum mönnum sem halda um stjórnvölinn í landinu sé sjálfrátt. Hvort þeir viti hvað þeir séu að gera með framferði sínu? Því miður er svarið það að þeir vita það. Þetta er hugmyndafræðin.
Og gleymum því ekki að þetta er ekki einkamál Steingríms J. Sigfússonar. Þetta er allt saman í boði þeirra þingmanna sem ljá ríkisstjórninni stuðning, svo sem tveggja ráðherra ríkisstjórnarinnar úr Norðvesturkjördæmi þeirra Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra og Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsog landbúnaðarráðherra.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook