25.11.2011 | 16:07
Ögmundur sagði nei, eins og alltaf lá fyrir
Þá er því formsatriði lokið. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra búinn að tilkynna það sem fyrir hefur legið lengi. Hann heimilar ekki söluna á Grímsstöðum til Kínverjans Nubo. Menn rjúka upp til handa og fóta. En hverjum kom þetta eiginlega á óvart? Allir sem eru læsir og með sæmileg skilningarvit hafa séð að í þetta stefndi. Ögmundur hefur verið og er andvígur því að þessi sala gangi eftir. Hann hefur vald til þess að stoppa málið að og gerði það; eins og augljóst var frá fyrsta eða næst fyrsta degi.
Nú er hann klætt skoðun sína í búning kansellísins og kynnt svo málið á ríkisstjórnarfundi. Það er svona faglegra yfirbragð á því. Efnislega skipti það engu máli. Í dag var bara verið að pakka málinu inn í nauðsynlegar umbúðir til afhendingar á ríkisstjórnarfundi.
Það er fyrir löngu vitað að núningur hefur verið á milli ráðherranna um þetta mál. Jóhanna Sigurðardóttir mætti á tröppur stjórnarráðsins og sagðist vilja heimila þessa sölu. Efnahags- og viðskiptaráðherra ber að lögum að setja fram álit sitt á málinu. Það gerði hann afdráttarlaust. Hann vildi láta heimila söluna. Samfylkingin þver og endilöng vildi heimila söluna til hins kínverska skálds.
Ögmundur Jónasson lætur þetta fólk ekki segja sér fyrir verkum. Veit sem er að hið minnsta styggðaryrði úr átt samstarfsflokksins gæti sett stjórnarsamstarfið í uppnám. Og það ætla forsætisráðherrann og félagar að forðast. Þeir samfylkingarmenn munu eitthvað mótmæla og eru svo sem eitthvað byrjaðir. En síðan ekki söguna meir. Þetta veit Ögmundur og nagg úr Samfylkinguna mun því ekki raska hans ró.
En þetta mál og kolefnisskattaofstækið mylur auðvitað innanfrá allt trúnaðartraust á milli stjórnarflokkanna. Ekki þannig að mikið hafi verið finnanlegt af slíku í samstarfi stjórnarflokkanna. En þetta bætir enn í tortryggnina.
Nú á Samfylkingin næsta leik. Þeir telja sig eiga næsta rétt á prakkarastrikum og andtyggilegheitum í garð VG, eftir kolefnisskattavitleysuna og Grímsstaðamálið. Nú verður farið að taka í gíslingu einstök mál frá ráðherrum VG, þvælast fyrir í stöku málum og leka út meinlegum hlutum um samstarfsflokkinn. og ég sé að þeir eru þegar byrjaðir ! Við höfum séð þetta á þessu kjörtímabili og þannig verður það.
Sem sagt. Rétt eins og áður. Hanónýt ríkisstjórn í innbyrðis skærum hingað og þangað og sem kemst ekki fyrir vikið til nokkurra ærlegra verka við landstjórnina. Ekki frekar en fyrri daginn.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook