Jóhanna er vanstillt – segir Ögmundur

 

Þegar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lýsir ástandi samstarfsflokks síns í ríkisstjórn grípur hann til læknisfræðilegra hugtaka. – Ég vona að hinn pólitíski sótthiti brái af mönnum, segir ráðherrann og vísar þar með til þess að pólitískur krankleiki hafi sótt að ráðherrum og þingmönnum Samfylkingarinnar.

Hér er innanríkisráðherra að lýsa viðbrögðum forsætisráðherra, fleiri ráðherra og þingmanna Samfylkingarinnar í kjölfar ákvörðunar hans um að veita Kínverjanum Huang Nubo ekki undanþágu til þess að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum.

Og síðan hvetur hann til stillingar og yfirvegunar. Með því á hann við að hvorugt hafi verið fyrir hendi í ranni samstarfsflokksins. Hann er í rauninni að segja að Jóhanna Sigurðardóttir hafi verið vanstillt í viðbrögðum sínum eða að þau Árni Páll Árnason, Katrín Júlíusdóttir, Kristján L. Möller og Sigmundur Ernir Rúnarsson hafi ekki stjórn á sjálfum sér, en þau hafa öll tjáð sig í þessu máli.

Þetta er athyglisvert og lýsir auðvitað því hversu allt trúnaðartraust er horfið í sjtórnarsamstarfinu. Svona harðir dómar – þó felldir séu undir rós – segja sína sögu.

En rétt eins og hér var bent á í gær, er þetta allt fyrirsjáanlegt. Samfylkingin fýlir að vísu grön. Ögmundur Jónasson veit hins vegar sem er að að síðan gerist ekkert frekar. Samfylkingin þorir ekki að aðhafast neitt sem setji ríkisstjórnarsamstarfið í hættu. Þess vegna gengur innanríkisráðherra svo langt að tala niður til einstakra þingmanna eins og í Kastljósinu á föstudagskvödlið. Síðan heldur hann áfram, hæðir samstarfsflokkinn, segir ráðherra og þingmenn hans vera með pólitísk sjúkdómseinkenni og vanstillta ofan í kaupið.

Þetta heitir á góðri íslensku að láta menn fá það óþvegið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband