7.12.2011 | 09:34
Veljum bestu leiðina
Heiðarlegast hefði það verið fyrir Skipulagsstofnun að segja einfaldlega í nýju áliti sínu um vegagerð á Vestfjarðavegi: Ekki leggja nýjan veg. Notið bara gömlu troðningana.
Þetta álit stofnunarinnar er vitaskuld fullkomið hneyksli. Það er ekki að undra þó heimamenn tali um einelti af hálfu hennar þegar kemur að vegamálum á þessu svæði og bendi á að stofnunin standi í vegi fyrir vegagerð þar sem þörfin er brýnust.
Hér er um að ræða vegagerð frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði. Mjög brýnt er að fara tafarlaust í þessar framkvæmdir. Hönnun vegarins á þessu svæði er tilbúin, þörfin hrópar á að farið verði í framkvæmdirnar þegar í stað og veginum komið í nútímalegt horf. Því ber mjög að fagna yfirlýsingu Hreins Haraldssonar vegamálastjóra sem sagði í viðtali við vefmiðlinn http://www.visir.is/ í gær en þar sagði:
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að þetta álit Skipulagsstofnunar raski ekki þeim áformum að bjóða verkið út í janúar og að Vegagerðin muni halda sínu striki og sækja um framkvæmdaleyfi til Vesturbyggðar og Reykhólahrepps.
Framkvæmdaleyfið er í höndum sveitarstjórna og því ætti ekkert að standa í vegi þess að farið verði í framkvæmdirnar án tafar.
Hönnun Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir þverunum á Mjóafirði og Kjálkafirði. Það er brýnt að sú leið verði farin. Með því er unnt að stytta leiðina um 8 kílómetra, losna við snjóakafla sem hafa verið til mikilla trafala og útrýma stórhættulegum beygjum, blindhæðum og fjórum einbreiðum brúm.
Skipulagsstofnun leggst gegn þeirri vegagerð, sem boðar illt eitt varðandi vegagerð að öðru leyti á Vestfjarðavegi 60. Því eins og menn muna er krafa heimamanna sú að leiðin liggi um láglendið. Slíkt kallar á þveranir fjarða. Álit Skipulagsstofnunar gefur til kynna að stofnunin leggist þvert gegn öllu slíku.
Sama máli gegnir um afstöðu stofnunarinnar til vegalagningar um Litlanes á þeirri leið sem nú er tilbúið til útboðs. Skipulagsstofnun er í raun að leggja til vegagerð sem kallar á leið sem er óöruggari og alls ekki í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til nútíma vegaframkvæmda. Er það með ólíkindum hvernig allar hugmyndir um vegagerð á Vestfjarðavegi 60 eru meðhöndlaðar.
Það er því ekki að undra þó heimamenn séu gáttaðir á svona sjónarmiðum, núna þegar 21. öldin hefur hafið innreið sína fyrir áratug. Tillögur af þessu tagi eiga að heyra til fortíðinni, en ekki nútíðinni og eru alls ekki í samræmi við þá framtíð sem íbúar Vestfjarða gera kröfur til þegar að vegamálum kemur.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook