14.12.2011 | 10:35
Pirringurinn í VG
Í þingflokki Vinstri grænna er greinilegur pirringur yfir þeirri umræðu sem hefur orðið um ætlaðar breytingar á ráðherraliðinu. Í flokknum er þetta talið einkamál og að þau eigi að útkljá í bakherbergjum, reykfylltum eða reykræstum.
Ráðherrakapallinn sem ætlunin var að leggja á aðventunni
Þetta kom skýrt fram í orðaskiptum okkar Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra á Alþingi, sem fetaði slóð foringja síns Steingríms J. Sigfússonar og vék sér undan því að lýsa stuðningi við Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra.
Þráinn Bertelsson, sem hefur fyllt aðeins upp í skörðin sem hafa myndast í þingflokki VG, pirraði sig líka yfir því að þessi mál væru til umræðu. Hann telur líkt og Steingrímur formaður og Svandís að umræður um þessi mál eigi ekki að ná út fyrir hina hljóðeinangruðu veggi flokksins. Þessu svaraði ég í ræðu á Alþing, sem hér má sjá.
Steingrímur J. Sigfússon lagði sérstaka lykkju á sína leið þegar hann svaraði Birgi Ármannssyni þingmanni á Alþingi um óskylt mál. Leyndi sér ekki pirringur formannsins yfir því að mál þessi séu á dagskrá utan flokksmúranna.
Eins og önnur mál þá eiga þau sér líftíma í fjölmiðlum. Nú eru þau greinilega undir leyndarhjúp stjórnarflokkanna. Flækjustigið jókst með áformum Steingríms J. Sigfússonar um að leggja undir sig alla efnahagsstjórnina við ríkisstjórnarborðið. Því var illa tekið í samstarfsflokknum, Samfylkingunni. Svo illa raunar að Jóhanna Sigurðardóttir sá sig knúna til þess að kveða niður þessi áform frá formanni samstarfsflokksins.
Þau mál eru hins vegar óleyst deila, þar sem formaður VG situr sem fastast við sinn keip.
En á meðan bíður forysta ríkisstjórnarinnar þess í ofvæni að þingið fari í jólahlé. Ekki er talið þægilegt að efna til uppgjörs um ráðherrastólana á meðan Alþingi situr. Það er því talið til pólitísks þægindaauka að leggja til atlögu við verkið í nálægð jóla og áramóta. Að því auðvitað gefnu að forysta stjórnarflokkanna hafi vald á því ennþá að láta til skarar skríða gegn þeim ráðherrum sem ekki teljast lengur þóknanlegir.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook