30.12.2011 | 09:14
Vantraust á eigin þingmenn
Með því að taka upp viðræður við fulltrúa annarra stjórnmálaafla á Alþingi hafa forystumenn ríkisstjórnarinnar lýst yfir vantrausti á sína eigin þingmenn. Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon hafa með þessu háttalagi sent út þau skilaboð, að þau treysti ekki lengur á þingmenn stjórnarflokkanna til þess að verja ríkisstjórnina vantrausti, þrátt fyrir að Samfylking og Vinstri grænir hafi ennþá formlegan meirihluta á Alþingi.
Þetta er uppgjöf; yfirlýsing um að þau telji sig ekki hafa meirihluta á bak við sig, eins og Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefur bent á. Ríkisstjórnin sé í rauninni minnihlutastjórn, eins og sakir standa.
Ríkisstjórnin hefur tapað erindi sínu
Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa lyft fingri gagnvart tilteknum þingmönnum flokka sinna og lýst því í rauninni yfir að þeim sé ekki treystandi í stjórnarsamstarfinu. Þetta er eins konar stríðsyfirlýsing gagnvart þeim þingmönnum sem hafa dirfst að andæfa ríkisstjórninni í einstökum málum. Nöfnin þarf ekki að nefna, þau þekkjum við úr umræðunni.
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon eru í fullkominni örvæntingu. Ætlunin er bersýnilega að stokka með einhverjum hætti í ríkisstjórninni, en aflið er ekki til staðar til þess að takast á við afleiðingarnar. Þess vegna eru Jóhanna og Steingrímur komin á biðilsbuxurnar, lögst á hnén og farin að grátbæna Hreyfinguna og Guðmund Steingrímsson um liðsinni.
Þetta er örvænting og til marks um að hið litla trúnaðartraust sem enn leyfði af í ríkisstjórnarflokkunum sé horfið. Segja má að nú sé með formlegum hætti búið að lýsa því yfir sem við öllum hefur blasað um talsvert skeið. Ríkisstjórnin hefur bara einn tilgang, á eitt erindi: Að sitja. Erindið við þjóðina er löngu horfið og örendið þrotið. Nú er bara eitt eftir. Vilji forystumannanna til þess að læsa sig i ráðherrastólana.
Annað rekur á reiðanum. Þjóðarhagsmunir víkja, en löngunin í slímusetur á ráðherrabekkjunum ríkir. Flóknara er það nú ekki.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook