15.11.2012 | 20:49
Þau ætla að verja heimsmetsnafnbótina í sviknum loforðum
Það er langt síðan að ríkisstjórnin sló öll met í sviknum loforðum. Þess vegna er svo komið að enginn treystir því lengur sem forystumenn ríkisstjórnarinnar gefa fyrirheit um. Hingað til hafa menn hins vegar almennt talið að einvörðungu væri um íslandsmet að ræða í sviknum loforðum. Nú er orðið ljóst að ríkisstjórnarforystuna hampar ekki einasta íslandsmetinu, heldur hefur fengið til eignar heimsmeistarabikarinn fyrir svikin loforð. Þessa útnefningu fékk hún úr hendi heildarsamtaka launafólks á Íslandi, ASÍ.
Og það sem verst er auðvitað að ekki verður neitt annað skilið en að þennan titil ætli ríkisstjórnin að verja og halda áfram að svíkja samtök launafólks, atvinnulífið og lífeyrissjóðina og sjóðfélaga þeirra.
Bakgrunnurinn er þessi:
Í gær ákvað Alþýðusamband Íslands að stefna íslenskum stjórnvöldum vegna skatts á lífeyrissjóðina. ASÍ bendir á að umrædd skattlagning lendi einungis á lífeyrisréttindum fólks á almennum markaði og brjóti gróflega, eins og segir í ályktuninni, gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Þeir færa fyrir þessu rök í sérstakri greinargerð, benda á að fyrir ári hafi ríkisstjórnin lagt fram frumvarp þar sem lagt var til að settar yrðu verulegar álögur á lífeyrissjóðina. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon þáverandi fjármálaráðherra höfðu þá sent forseta Alþýðusambandsins og framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins bréf þess efnis að ríkisstjórnin mundi sjá til þess með beinum framlögum að ekki kæmi til fyrrgreindrar skerðingar.- Ekkert hefur verið gert í því að koma í veg fyrir neikvæð áhrif umrædds skatts, sagði svo ASÍ í greinargerðinni
Það er enn fremur rifjað upp að við endurskoðun kjarasamninganna í janúar á þessu ári lögðu oddvitar ríkisstjórnarinnar, hin sömu Jóhanna og Steingrímur fram minnisblað um með hvaða hætti til stæði að afnema þessi lög með sérstöku samkomulagi um aðkomu lífeyrissjóðanna að áætlun Seðlabanka Íslands um útboð á aflandskrónum.
Og enn er sagt í greinargerð ASÍ um þetta: Minnisblaðið hafði mikil áhrif á að ekki kom til uppsagna kjarasamninga.
Í febrúar síðastliðnum var síðan undirritað samkomulag milli lífeyrissjóðanna og þáverandi fjármálaráðherra um þátttöku lífeyrissjóðanna í þessum útboðum.
Enn segir í greinargerð Alþýðusambandsins: Nú hefur fjármálaráðherra með stuðningi ríkisstjórnarinnar ákveðið að virða ekki þennan samning.
Með öðrum orðum, eins og segir í ályktun Alþýðusambands Íslands, er ekki bara búið að svíkja þessi loforð einu sinni, ekki bara tvisvar, heldur þrisvar.
Um þessi mál segir forseti Alþýðusambands Íslands í útvarpsfréttum í gær: Ég verð að viðurkenna að þetta er nú farið að jaðra við eitthvert heimsmet.
Fylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ um svik ríkisstjjórnarinnar: Ég verð að viðurkenna að þetta er nú farið að jaðra við eitthvert heimsmet.
Ríkisstjórnin er fyrir löngu síðan orðin íslandsmethafi í því að svíkja gefin loforð og fyrirheit. Það íslandsmet stendur og engar líkur á því að því verði nokkurn tíma hnekkt. En nú liggur fyrir að ríkisstjórnin er ekki bara íslandsmethafi í því að svíkja loforð og gefin fyrirheit, heldur handhafi heimsmeistaratitilsins. Hún hampar virðingarnafnbótinni, heimsmetshafi í því að svíkja gefin loforð og fyrirheit að mati forseta Alþýðusambands Íslands.
Ég spurði forsætisráðherrann á Alþingi í dag hvort ætlunin væri að verja þennan nýfengna en vafasama titil sinn eða hvort hún ætlaði svona til tilbreytingar að standa einu sinni við gefin loforð?
Viðbrögð Jóhönnu Sigurðardóttur voru þau að greinilega er ætlunin að verja nafnbótina sem forseti ASÍ færði ríkisstjórninni; heimsmetshafi í sviknum loforðum.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook