4.6.2007 | 08:54
Ábyrgðin er okkar
Við Íslendingar erum þjóð sem eigum allt okkar undir því að vel takist til við nýtingu náttúruauðlinda. Það er ekki algengt að svo sé, sérstaklega ekki hjá þjóð sem býr við þau lífskjör sem við þekkjum hér á landi. Það segir okkur líka, hvílík ábyrgð er lögð á okkar herðar. Það að við höfumnáð svo góðum árangri á efnahagssviðinu er til marks um að vel hefur verið að verki staðið í sjávarútvegi. Stærð sjávarútvegsins í efnahagskerfi okkar er slík að úrslitum ræður um velferð okkar sem þjóðar, hvort vel takist til í þessari undirstöðuatvinnugrein.
Þegar við mörkum stefnu okkar um nýtingu sjávarauðlinda markast það ekki einasta af ábyrgð gagnvart okkur sjálfum sem nú erum ofar moldu, heldur fyrst og fremst gagnvart afkomendum okkar. Okkur ber að skila náttúruauðlindunum í að minnsta kosti jafn góðu ásigkomulagi og við tókum við þeim. Þetta er sjálfbær nýting auðlinda og augljós öllum sem starfa að sjávarútvegi með einum eða öðrum hætti. Þessu gerir íslenska þjóðin sér grein fyrir því við ætlum ekki að byggja á sjávarútvegi eingöngu til skamms tíma. Þetta er atvinnugrein sem hér eftir sem hingað til verður burðarás og grundvöllur í efnahagslífinu. Þess vegna eru svo miklar skyldur lagðar á okkar herðar.
Tillögur frá Hafrannsóknarstofnun
Um þetta leyti á ári hverju birtast upplýsingar og ráðgjöf frá vísindamönnum okkar um stöðu fiskistofna. Það verður að segjast eins og er að nú síðustu árin hafa þær stöðugt valdið vonbrigðum þegar kemur að helsta nytjastofninum, þorskinum. Frá fiskveiðiárinu 2004 til 2005 hafa tillögur vísindamanna kveðið á um að minnka leyfilegan hámarksafla í þorski, sem vitaskuld hefur áhrif á stöðu og tekjur íslensks sjávarútvegs. Enn á ný hafa borist tíðindi í þessa veru því miður.
Mat Hafrannsóknastofnunar á þorskstofninum nú er í samræmi við það sem lesa mátti út úr niðurstöðum togararallsins fyrr á árinu og kemur þeim því ekki á óvart sem skoðuðu það. Í ástandsskýrslu síðasta árs var enn fremur hvatt til þess að verulega yrði dregið úr veiðiálagi á þorsk. Í áliti Hafrannsóknarstofnunarinnar, er enn hert á því og lagðar fram beinar tillögur í því skyni.
Aflaregla er í gildi
Ég minni á að nú er í gildi svo kölluð aflaregla varðandi þorskinn og sem var staðfest á ríkisstjórnarfundi á síðasta ári. Sú regla felur í sér að þorskkvóti yrði á þessu fiskveiðiári 178 þúsund tonn í stað þeirra 130 þúsund tonna sem tillaga Hafrannsóknarstofnunar felur í sér.
Samstarf
Það er ljóst að við stöndum frammi fyrir erfiðum ákvörðunum sem liggja þurfa fyrir nú í sumar. Ég hygg að við þessar aðstæður sé skynsamlegast að við setjumst niður; hagsmunaaðilar, stjórnmálamenn úr öllum flokkum og vísindamenn og förum yfir þessi mál. Þetta er ekki ákvörðun sem rasað er að, þetta er ekki ákvörðun sem menn taka umhugsunarlaust. Þetta er ákvörðun sem í bráð hefur mikil áhrif á tekjur þeirra sem standa í sjávarútvegi. Þetta er ákvörðun sem hefur síðan áhrif á stöðu þjóðarbúsins og atvinnustig og getur í lengd haft mikið að segja fyrir afkomu þjóðarinnar. Í því öllu saman felst okkar ábyrgð. Ég vil sérstaklega taka fram að ég hef hug á að eiga gott samstarf um þessi mál á þverpólitískum grundvelli og hyggst leita eftir því við forystumenn stjórnmálaflokkanna.
Vinna Hagfræðistofnunar
Í fyrra fól ég Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að gera sérstaka úttekt á þjóðhagslegum áhrifum af breyttri aflareglu og skoða áhrif af mismunandi veiðihlutfalli á þorski. Niðurstaðna þeirrar vinnu, sem staðið hefur nú um eins árs skeið, er að vænta innan tíðar. Þá má gera ráð fyrir að mynd okkar af stöðunni liggi skýrar fyrir og hver áhrif mismunandi ákvarðana yrðu á þjóðarbúið, einstök byggðarlög, svæði og atvinnugreinar. Að fengnum þeim upplýsingum, sést betur sú heildarmynd sem nauðsynleg er. Það dugar ekki þegar ákvörðun af þessu tagi er tekin, að myndin sem við höfum sé brotakennd. Hún verður að vera heildstæð.
Ég hvet því til og óska eftir góðu samstarfi við alla hagsmunaaðila og þá sem að þessari ákvörðun koma á komandi vikum. Ég lít ekki þannig á að þetta sé tími mikilla upphrópana eða sleggjudóma. Þetta er tími yfirvegaðrar yfirferðar þar sem við reynum að komast að sameiginlegri niðurstöðu með það að markmiði að tryggja sem best stöðu íslensks sjávarútvegs og byggðanna sem eiga líf sitt undir öflugum sjávarútvegi. Og til lengri tíma litið vegna hagsmuna þess fólks - æskunnar - sem á að erfa landið.
Góðir sjómenn og aðrir tilheyrendur.
Við Íslendingar erum gæfurík þjóð, við erum sjálfstæð þjóð. Þær ákvarðanir sem við tökum um nýtingu okkar sjávarauðlinda, hverju nafni sem þær nefnast, eru okkar ákvarðanir. Í því hefur gæfa okkar falist. Við lifum á tímum þar sem margt breytist og þar sem við þurfum að taka tillit til hagsmunanna í kringum okkur. Við erum ekki eyland í þeim skilningi að ákvarðanir okkar mótist ekki af því sem gerist í umheiminum í kringum okkur. Engu að síður höfum við hið endanlega og fulla vald á þessum ákvörðunum.
Aðrar þjóðir sem afsalað hafa sér þessu valdi standa ekki í þessum sporum og hafa ekki einu sinni forsendur til þess að velta fyrir sér þeim spurningum sem lúta að nýtingu náttúruauðlindanna sjálfra. Þessu skulum við ekki gleyma og þetta þurfum við að hafa í huga nú þegar við tökumst á hendur vandasamt verk. En þetta þýðir líka að ábyrgðin er okkar. Við flytjum hana ekki á annarra herðar. Það erum við sem tökum afleiðingum gjörða okkar.
Meginflokkur: Pistlar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook