18.8.2008 | 09:15
Svigrúm nýtt til hins ítrasta
Sveitasælan í Skagafirði, sem er í senn landbúnaðarsýning og bændahátíð er orðin föst í sessi. Þátttaka fyrirtækja og almennings er orðin mikil og margir leggja leið sína þangað til þess að skoða áhugaverða hluti og til þess að sýna sig og sjá aðra. Svo var einnig núna. Umfang sýningarinnar núna var meira en í fyrra, eins og sjá mátti í Reiðhöllinni Svaðastöðum þegar þar var gengið um nú um helgina.
Ég fékk það hlutverk að setja sýninguna líkt og í fyrra. Í ræðu sem ég flutti af þessu tilefni á föstudaginn og sem sjá má hér í heild ræddi ég einmitt hlutverk og stöðu landbúnaðarins í breytilegum heimi og lagði áherslu á þau tækifæri sem landbúnaðurinn ætti. Meðal annars vék ég að mikið umræddu matvælafrumvarpi sem nú er til meðferðar á Alþingi í ræðu minni sagði ég meðal annars:
Á þeim breytingatímum sem við lifum nú skiptir það hins vegar máli að til staðar sé kjölfesta. Landbúnaðurinn er íslensku þjóðfélagi slík kjölfesta. Þess vegna meðal annars, viljum við tryggja hagsmuni hans í hvívetna. Þær breytingar sem fyrirsjáanlegar eru, til dæmis með nýrri matvælalöggjöf, verða gerðar með hagsmuni íslensks landbúnaðar að leiðarljósi. Við munum gera strangar kröfur um heilbrigði matvæla og öll vitum við að slíkt þjónar hagsmunum landbúnaðarins, enda þótt það sé gert í þágu neytenda. Er þetta enn ein sönnun þess að hagsmunir landbúnaðarins og neytenda fara jafnan saman.
Um þessar mundir fer fram þrotlaus vinna á vegum sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytisins varðandi nýja matvælalöggjöf. Við viljum kosta kapps að vinna þá hluti í sem mestri sátt við bændur og aðra hagsmunaaðila á sviði landbúnaðar. Sjálfur er ég sannfærður um að slíkt samstarf getur dugað okkur til þess að ná niðurstöðu sem verður viðunandi landbúnaðinum og færir honum ný tækifæri.
Á undanförnum árum hefur verið lagt mikið fjármagn í uppbyggingu afurðastöðva landbúnaðarins. Ekki síst hér á Norðurlandi vestra. Þrjú af helstu sláturhúsum landins eru til dæmis starfrækt hér í Skagafirði og í Austur- og Vestur- Húnavatnssýslum auk annarrar starfsemi við við úrvinnslu landbúnaðarafurða. Þessi fyrirtæki eru vel í stakk búin til að mæta þeim skilyrðum sem vænta má. Við höfum nefnilega á undanförnum árum undirbúið okkur vel á margan hátt og gerum nú gríðarlega miklar kröfur til matvælaframleiðslu okkar. Nákvæmlega sömu kröfur og alls ekki minni - verða gerðar til framleiðslu á öllum matvælum sem hér verða seldar. Slíkt er gert í þágu neytenda og tryggir um leið hina sterku stöðu íslenskrar matvælaframleiðslu, ekki síst framleiðslu á landbúnaðarafurðum.
Það er ljóst að stjórnvöld hafa svigrúm í þá veru að setja skorður við innflutningi á matvælum sem ekki standast ítrustu kröfur. Það er ætlun mín að nýta það svigrúm til hins ítrasta. Ég ætla líka að fullyrða að fáir vilja ganga þannig frá löggjöfinni að hagmunir landbúnaðarins og úrvinnslugreinanna verði fyrir borð bornir. Það er í það minnsta ásetningur stjórnvalda að hagsmuna landbúnaðar okkar sé gætt.
Hér í Skagafirði sjáum við glæsileg dæmi um það hvernig landbúnaðurinn hefur á öllum tímum svarað kalli tímans. Öflugur og fjölþættur búrekstur um allt héraðið, traust menntasetur landbúnaðarins á Hólum, kröftug úrvinnsla landbúnaðarafurða. Allt er þetta til marks um það góða starf sem hér er unnið á landbúnaðarsviðinu. Allt eru þetta dæmi um landbúnað sem við viljum að geti eflst á komandi árum og við vitum að getur eflst enn í framtíðinni.
Þess vegna eigum við ekki að óttast breytingar, heldur takast á við þær. Stjórnvöld hafa þar hlutverki að gegna. Það hlutverk felur í sér varðstöðu um hagsmuni landbúnaðarins. Ekki með því að varðveita kyrrstöðuna, heldur með því að auðvelda okkur að takast á við framtíðina og breytingarnar og nýta okkur þau tækifæri sem í þeim eru falin.
Meginflokkur: Blogg | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook