Ekki veitir af

SprotarÞað er rétt sem á hefur verið bent, að mikilvægt er að stuðla að því með öllum tiltækum ráðum að snúa hinni kröppu vörn samfélagsins í öfluga sókn. Að undanförnu höfum við brugðist við margvíslegum vanda fyrirtækjanna og heimilanna þó alveg sé ljóst að enn þurfi að gera betur.

Nefna má aðgerðaráætlun þá sem ríkisstjórnin hefur kynnt og verið er að hrinda í framkvæmd fyrir heimilin. Þessi áætlun leit dagsins ljós þann 14. nóvember síðast liðinn. Um þau mál má lesa með því að smella á þessi orð.

Þá sendi ríkisstjórnin frá sér yfirlýsingu um aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi atvinnulífsins í tólf tölusettum atriðum. Hana má lesa hér.

Að ýmsu hefur verið unnið sem miðar einnig að því að örva atvinnulífið. Ekki síst að nýta þau tækifæri sem nú eru að verða til fyrir sprotafyrirtæki og nýsköpun af margs konar tagi. Um þau mál hefur margt verið fjallað og ljóst að nú eru að verða til ákaflega spennandi atvinnutækifæri, sem ekki veitir af við þessar aðstæður.

Ég gerði þessi mál að umræðuefni í ræðu sem ég flutti á Sauðárkróki nú á dögunum og gerði þar grein fyrir ýmsum spennandi hlutum sem væru að eiga sér stað á vettvangi MATÍS. Enn fjallaði ég um þessi mál í pistli sem skrifaður var á þessa heimasíðu nú fyrir skemmstu.

Þá ræddi ég þessi mál all ítarlega við setningu 26. þings Sjómannasambands Íslands nú í morgun. Þar fjallaði ég meðal annars um tvo sjóði á sjávarútvegssviði sem heyra undir Sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytið. Annars vegar samkeppnisdeild Verkefnasjóðs og hins vegar AVS sjóðinn. Báðir eru þessi sjóðir samkeppnissjóðir og verða þeir sem styrk hljóta að leggja fram amk. jafn há framlög. Með því er hægt að tvöfalda rannsóknarféð.

Hinn fyrri sjóðurinn (Samkepppnisdeildin)  hefur það hlutverk að efla hafrannsóknir og auka fjölbreytni þeirra. Varlega má áætla að sá sjóður hafi stuðlað að rannsóknum fyrir amk. 300 milljónir króna, á sviði þar sem ekki var auðvelt um fjármögnun áður og fyrr.

AVS er mun stærri sjóður og hefur víðtækara hlutverk (aukið verðmæti sjávarfangs) Má ætla að vel á fjórða milljarð króna hafa verið leystir úr læðingi til nýsköpunar í sjávarútvegi fyrir tilstilli AVS frá stofnun hans.

Þetta eru dæmi um sóknarhug og að við erum að nýta það fé sem við höfum til rannsóknar og þróunarstarfs til þess að efla atvinnulífið og einkum nýsköpun í landinu. Víst er að ekki mun af veita.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband